...and you will know us by the trail of dead!
19.08.2009 15:07:05 / hakonice

Nýjasta bloggið mitt

Halló krakkar.

kv,
Ég


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 22:48:51 / hakonice

kalt vatn

Hæ.

Með komandi skólaári á maður alltaf að taka upp bloggið aftur. Því eins og allir vita sem hafa nokkurn tíman setið á skólabekk reynir maður helst að gera allt annað en að læra. Um daginn tók ég t.d. uppá því leggja hendur á námshest og bókaorm (nörd).

Já, skólaárið mitt er byrjað enn eina ferðina. 18. veturinn í röð. Ég man ennþá eftir mínum fyrsta skóladegi snemma hausts árið 1990. Ég grét, öskraði og sparkaði eins og Amy Winehouse á góðum degi og þverneitaði að fara í skólann, taldi mig ekki eiga erindi þangað. Þegar reynt var að róa mig niður og segja eitthvað snoturt við mig eins og nú myndi ég læra að lesa og skrifa og hitta fullt af nýjum krökkum, þá gaf ég það sterklega í skyn að ég taldi mig ekki þurfa að kunna að lesa og skrifa. Enda fannst mér að ég hefði komist ágætlega af þessi 6 ár án þess að kunna það, og hvað nýju krakkana snertir, þá fann ég enga þörf að hitta þá, ég átti nóg af vinum fyrir í götunni og þar í kring. Auk þess voru nýju krakkarnir vondir við mig.

Og nú, 18 árum síðar, þá hef ég ekki ennþá orðið var við það hversu gott það er að kunna að lesa og skrifa þrátt fyrir mörg gefin loforð og "nýju" krakkarnir í skólanum eru ennþá vond við mig.

Hvar er réttlætið?

Ég skal segja ykkur það. Réttlætið er hjá Bernie Mac og Spora. Steindautt.

Ég er s.s. byrjaður að læra fyrir upptektarpróf í Efnafræði og ég er ekki fíla það. Dramb er falli næst og ég féll með stæl. Það er ekki góður grunnur að vera stúdent af íþrótta og sálfræðibraut og læra svo bara hvernig maður gerir eitthvað sem ég skil ekki.


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 12:44:16 / hakonice

uss....

bannaðaðtala

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 16:46:24 / hakonice

I love the Power Glove... its so bad

Ég gleymdi óvart að blogga í apríl, enda þjáðist ég af ofdrykkju og lá mest allan mánuðinn í brennivíninu að undanskildum einum degi þar sem ég hélt fyrirlestur þar sem ég afrekaði að stama og skjálfa allan tíman vegna fráhvarfseinkenna. Fyrirlesturinn var hundleiðinlegur og einstaklega ófullnægjandi fyrir alla nærstadda.

Um daginn lagði ég leið mína norður að vetri til, þá var hið vænsta veður í Reykjavík og leið mér vel. Var algjörlega búinn að gleyma rigningar suddanum sem herjaði á mig nánast allt haustið og meirihlutann af vetrinum þangað til það varð kalt og það fór að snjóa. Ég kann vel við snjóinn og kuldann því ég verð ekki hlandblautur ef ég fer eitthvað út. Snéri svo til baka á Sumardaginn fyrsta, og hvað skeður? Um leið og nýji Lexus Galantinn minns ástkæra sambýlismanns skríður uppúr Hvalfjarðargöngunum mætir okkur þessi líka ógeðslega rigning. Þannig að árstíðirnar í Reykjavík eru bara tvær, monsún-tímabil frá því að sumardagurinn fyrsti poppar upp sem er alltaf fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl (þá vitiði það) og nær til 1. jan á næsta ári, en þá hefst veturinn og það er snjór, kalt og þokkalegt veður þangað til á bilinu 19-25 apríl (þá er sumardagurinn fyrsti yfirleitt).

Veðrið var að sjálfsögðu brilliant og best fyrir norðan. Engin gola, bara logn og æði.

Núna eruð þið búin að læra um árstíðirnar í Reykjavík og sumardaginn fyrsta.

Að öðru, ég óska eftir einhverjum (má vera kall eða kona, drengur eða stelpa) til að ganga með afkvæmi mitt áður en ég hef störf sem geislaFRÆÐINGUR. Ég hef nefninlega í höndunum upplýsingar varðandi áhrif geislunnar á pung minn, en þessir geislar geta víst gert mig steingeldan, ófrjóan og valdið erfðagöllum í tilvonandi börnum mínum. Ég hafði hugsað mér að koma kannski niður 3-4 krökkum fyrir sumarið 2009, þannig að um að gera að hafa samband sem fyrst. Fyrstir koma, fyrstir fá eins og Hristispjót orðaði það.
Ástæðan fyrir þessu er að ég vill ekki eignast holgóma börn sem segja bara "hnjooo... hnjooooo".

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:37:32 / hakonice

ég setti blóm hjá glasinu þínu

Í gær fékk ég mér vefvafrann Eldref eða firefox eins og hann nefnist í útlöndunum og mun þetta vera fyrsta bloggið mitt í téðum vafra.. Helsta ástæða þess var vegna þess að internet könnuðurinn minn eða internet explorer var farinn að frjósa í gríð og erg og það olli mér gremju. Ég grét.

Bloggleysið mitt einkennist helst af því að það nennir enginn að lesa þetta og ég nenni ekki að skrifa hérna, auk þess sem ég hef verið að vinna að rannsókn um það hvort að endur verði sjóveikar þegar þær eru að gera dugga dugg á tjörninni í Reykjavík þegar það er hvasst. Niðurstaðan var einföld; nei, þær verða ekki sjóveikar. Ef þið viljið tala við mig þá verð ég á andarbakkanum að snæða með þeim og vinna að þessari tilvonandi nóbelsverðlauna rannsókn minni. Vegna mikilvægi þessara rannsókna hef ég ákveðið að leggja allt skólahald á hilluna og einbeita mér alfarið að því að stúdera endur og þol þeirra gagnvart sjóveiki. Enda kom það í ljós að ég get hæglega drepið fólk með því að skjóta geislum í það.. og það vill ég að sjálfsögðu ekki. Þegar ég komst að þessu leið mér hálfpartinn eins og köngulóamanninum eða Spiderman en það var einmitt tíður frasi á þeim bæ að segja "með miklu valdi kemur mikil ábyrgð" eða á útlensku; with great power comes a great responsability. Þannig að ég ætla að einbeita mér að öndunum í bili.

Þegar ég verð búinn að finna út leyndarmál þeirra ætla ég mér að græða margar milljónir á ekta sjóveikistöflum eða sjóveikisbúnaði, hvort heldur sem það verður. Ég mun allavega enda ríkari en þú, pottþétt.

Sko? Maður þarf ekkert að fara í skóla til að eignast peninga. Bara vera snjall og sjá litlu sætu brabra á tjörninni og komast að leyndarmáli þeirra.

Ég ætla að yfirgefa þetta partí.



» 9 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 09:35:00 / hakonice

sögn

ég hata strumpa, tölfræði, sólina, kuldann, fifa 2006, alþjóðamál, efnahag, ferðalög, fjölmiðla, vísindi, heilbrigði, íþróttir, blautt hár, reykjavík, smíðalykt, ármúla, kláðann í klofinu á mér, utah jazz, karl malone, kvikmyndir, mat, menningu, john stockton, drykki, sjálfstæðisflokkinn, steve kerr, ofur-femínasta, trukkinn í skólanum, umhverfið, litlu hafmeyjuna, jospeh smith, l. ron hubbard, stjórnmál, umræður, tónlist, ský, flugvélar, snáka, listir, of stórar flugur, köngulær, trúarbrögð, flatan bjór, tölur, tom jones, tom cruise, tom affleck, tom damon, nám, tækni, slúður, tom thomas, tom bosley, útlendinga, íslendinga, gyðinga og restina af hinu fólkinu.

held að ég sé ekki að gleyma neinu

annars er ég nett sáttur og huggulegur gæji.

því miður þá hurfu allir tenglar frá mér þegar blogginu var breytt. ef þú vilt fá þinn eigin tengill hér þá kostar það knús (afþví að mig klæjar svo í klofið) og komment

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 02:34:05 / hakonice

N í öll mál.. og orðin mín - vélhaus

Það er búið að breyta blogcentrapunkturis ógeðslega mikið. Mér finnst þetta soldið sætt.. sé reyndar smá eftir því að flestir allir linkar (vefslóðir fyrir ykkur trega fólkið) hvarf héðan. En það gerir svosem ekkert til, rúm 69% af fólkinu þar var hætt að blogga eða horfið úr mínu lífu.

Ég hef uppgvötað nýtt takmark í lífi mínu, ég ætla að gerast Dance Commander, eða  Dans Foringinn eins og ég vill nefna mig. Eða eins og þeir myndu segja í nýja landinu, danzi der fuhrer. ójá beibí.
Dance Commader kann allt, hann kann að fara útí búð og sækja eld til að heyja eitt eða tvö stríð.Auk þess ef ég væri Dans Foringi þá yrðuð þið að hlýða mér því ég gef út tilskiparnir um hvar, hvenær og hvernig stuðið ætti að vera. Þið mynduð líka elska mig, en þetta myndi að öllu líkindum enda á hjartaáfalli.

Auk þess kann danzi der fuhrer líka Batusi, og er hann einn af þeim fimm sem kunna þann dans. Hinir fjórir eru ég, Binni, Adam West og Batman.
Ég ætla að dansa Batusi þangað til ég gleymi, því ég dansa svo vel.

Ég dansa samt ekki, stelpur dansa.
luftgítar auf der danzi fuhrer bitte, jawhol!

Ég varð að setja blogg inní febrúar, þó svo ég vissi ekkert um hvað það ætti að vera.

Nýja ritdraslið í word telur orðin, þetta blogg munu vera svo mikið sem 234 orð.


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 12:53:31 / hakonice

kufl

Í tilefni þess að öll bloggin mín eru leiðinleg héðan í frá og að ég las um daginn blogg þar sem var verið að hrauna yfir fólk sem hælir sér í gríð og erg hef ég ákveðið að koma eftirfarandi á framfæri.

Ég er frábær.

Svo ætla ég að henda hérna inn smá keppni. Hún hljóðar svo;

Þeir sem keyra um Reykjavíkina eins og óðir menn (eins og ég) hafa vafalaust tekið eftir þessum skiltum á öðrum hvorum ljósastaur þar sem má sjá mynd af traktor og sýnt er á hvaða tímum leyfilegt er að keyra slík fyrirbæri um helstu og stærstu götur þorpsins. T.d. stendur "aðeins milli 9-11 og 14-16". Ég hef á öllum mínum nærri því 30 árum aldrei nokkurn tíman séð dráttarvél í borginni (að mér undanskildum, ójá!). Því velti ég fyrir mér hver tilgangur skiltanna sé.

Sá sem getur komið mið áræðanlegar sannarnir fyrir traktor notkun í Reykjavík fær vegleg verðlaun að eigin vali, allt innan siðferðislega marka auðvitað. Ég tek það fram að ég þarf að sjá mynd af þessu fyrirbæri, það er ekki nóg að segja "sko, frændi minn, hann Einar". Slíkt brot varðar við brottrekstri úr keppni og næstu þrem.

Með von um góðar undirtektir.

Virðingarfyllst.´

Ég.

:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 09:48:01 / hakonice

ræs regnboga stríðsmenn, ræs

Við skulum rita.. eða ég skal rita og þið skuluð lesa og eftir að þið lesið skuluð þið kommenta (það er nú nýtt ár).

Á þessu nýja ári (tvöþúsundogátta) og tilefni þess að ég ét regnboga í morgunmat á hverjum degi hef ég ákveðið að strengja mitt fyrsta áramótaheit.

Áramótaheitið mitt verður að hætta að röfla, væla og drulla yfir hina ýmsu minnihlutahópa. Ég ætla s.s. að hætta að skrifa hérna um eitthvað sem fer aflaga í mínu daglega lífi. T.d. ef ég væri að gráta hérna á blogginu ennþá þá myndi ég vafalaust röfla yfir því að strætó kom 10 mín of seint um daginn og bílstjórinn angaði eins og honum hafi verið dýft í marmelaði romm í nokkra daga og líka kvarta yfir því að ég borgaði 1000 kall fyrir berklapróf sem ég átti ekkert að borga fyrir (já, ég er með banvænan smitsjúkdóm).

Í staðinn fyrir þetta hef ég ákveðið að dásama litlu hlutina í lífinu. Eins og t.d. það að ég vaknaði alltof snemma í morgun með regnboga bragð í munni og þurfti ekkert að borga fyrir lifrabólgu b bólusetningu og fæ meir að segja að mæta aftur í febrúar og aftur í júlí.

Það sem ég er að reyna að segja er að öll bloggin mín í komandi framtíð verða drepleiðinleg.

Ég ætla að fá mér að borða.


» 17 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 13:46:29 / hakonice

this is so túþúsendandseven sko..

Brátt líður þetta ár undir lok og næsta tekur við.. ég gæti sett saman fræðilega úttekt á þessu ári sem er að líða.. en ég nenni því ekki...

....þannig að gleðilegt nýtt ár :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:30:43 / hakonice

2007

Ég held að ég óski til hamingju með Jólin.

Gleðileg Jól :haha:

(ég þoli ekki þessa broskalla en ég varð að þrykkja einum inn, það eru nú jól)


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 12:06:38 / hakonice

blásum á mjása

Núna er tiltölulega vont veður úti eins og allir allsgáðir og vel gefnir Reykvíkingar hafa örugglega tekið eftir. Á meðan ég sit hérna á bókhlöðunni fylgist ég grannt með veðurspánni og fréttum af vonda veðrinu á mbl.is svo ég viti hvenær mér sé þorandi út til að fá mér eitthvað feitt að borða.

Við lestur allra þessra frétta um björgunarsveitarmenn, lögreglu og slökkviliðs sem hlaupa út eins og trítilóðir andskotar til að hjálpa þeim sem föttuðu ekki að þegar það hvessir þá eiga hlutir það til að fjúkja, þá furða ég mig á því hvar skátarnir eru. Skátar titla sig oft sem "hjálparsveit skáta" en ég get ekki séð að þeir séu að hjálpa einum einasta manni á þessum verstu tímum. Kannski hjálpa þeir bara fólki þegar það er gott veður, hver veit? En því spyr ég, hvar eru skátarnir?

Ég hef því ályktað að skátar eru bara fyrir homma og kynvillinga. Með því má auðveldlega útskýra hvar skátarnir eru. Þessir ratleikir og hnútaæfingar sem þeir stunda er auðvitað allt saman hommalegt. Ratleikirnir eru til þess að þeir geti gert kynlífið sitt spennandi með því að fela sig fyrir hvorum öðrum og leggja fram vísbendingar svo það sé öruggt að þeir finnist og fái eitthvað í kakóið sitt. Hnútaæfingarnar eru til þess að þeir geti stundað sitt siðlausa bindikynlíf áhyggjulausir, því ekki vilja þeir hnútarnir losni þegar menn eru á kafi í skít og saur. Að ég tali nú ekki um þessi alþjóðlegu skátamót sem þeir fjármagna með flugeldasölu. Eitt stórt kynsvall.

Ergo; skátarnir eru heima í svefnherbergi að æfa sig í ratleikjum, rembihnútum og að undirbúa næstu flugeldasölu og hafa það kósý á meðan alvöru karlmenni eru úti að berjast við veður og vind. Svona eins og ég í morgun þegar ég hætti mér út í veðrið til að fara á bókhlöðuna og lét svo konuna keyra því ég er svo hræddur við umferðina í Reykjavík. Ég er alvöru karlmenni.

Ef þú ert skáti, þá biðst ég ekki afsökunnar á því að hafa móðgað þig. Og munið, einu sinni skáti ávallt hom.. ég meina skáti.

spurning dagsins; ert þú skáti?


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 03:53:58 / hakonice

svangur maður fær sér oft að borða, nema hann sé starvin marvin

Ég skil ekki tvö trend dagsins í dag, Facebook og Myspace. Samt á ég nú bæði en ætla að nota tækifærið til að níðast á Myspace og svo Facebook seinna. Einnig vil ég koma því á framfæri að ég er búinn að glósa helvítis helling í líffærafræði í nótt og horfa á Turtles 1, 2 og 3. Törtles maraþon á föstudagskvöldi í nekt. Törtles 1 skarar án vafa framúr, 2 er þokkanleg en númer 3 er bara slys sem hefði auðveldlega verið hægt að koma í veg fyrir. Í tilefni maraþonsins setti ég nýja könnun.

Ég hef aldrei skilið Myspace. Fólk er addandi hinu og þessu og í keppni hvor eigi fleiri vini og hvort getur sett flottari komment hjá hvoru öðru. Einu sinni fékk ég glimmerpakka og skóhorn í komment. Ég ældi. Annað sem ég skil ekki við Myspace eru þessir ótæmandi spurningarlistar sem ekki virðist sjást fyrir endann á og ganga á mannana milli.

Spurningar eins og "í hvernig nærfötum ertu í dag?", "hver lá síðast í rúminu þínu?", "þegar þú hafðir síðast hægðir, voru þær blautar eða harðar?" og "tókstu eftir því að spurningu númer 54 vantaði?".

Kommon, hver þarf að vita svona vitleysu? Ég veit ekki einu sinni hvernig nærfötin mín eru (enda er ég ekki í neinum) og ég fylgist sáralítið með eigin hægðum. Ég fer ekki fram og kalla á sambýlismanninn minn og segi "hey, Kolli, hvort myndiru segja þetta blautt eða hart?" og posta því svo á bulletin á Myspace. Ég vil ekki vita hver setti síðast í kakóið á hverjum né hvernig fólk fer framúr á morgnana eða hvar. Og væntanlega lá ég síðast í rúminu mínu, þetta er jú rúmið mitt. Ennfremur, hverjum er ekki skítsama þó svo það hafi vantað spurningu númer 54? Er það ekki bara betra? Þá er einni vitleysunni færra til að pirra sig á. Spurning 54 yrði hvort er eð bjánaleg og verið á þessa leið "veistu úr hverju steiktur laukur er gerður?" eeeedöööööööö.

Hvers konar athyglissýki er þetta eiginlega? Þetta er til háborinnar skammar skal ég segja ykkur. Fólk er að rjúfa sína eigin friðhelgi og einkalíf með þessu og mér finnst að það ætti að vera lögbrot. Í mínu landi væri það lögbrot. Í mínum hugarheimi er það lögbrot. Í mínu tilfelli eru orð mín lög. Í. Ef fólk hefur einhverja óskiljanlega þörf til að fylgjast með litnum á brókunum mínum og hvernig ég fer framúr má það bara koma og gista uppí hjá mér. Væsgú.

En þrátt fyrir þetta þá stunda ég Myspace þegar ég fæ meldingu um það að eitthvað sé að ske þar. Ef einhver kommentar hjá mér með tilgangslausu kommenti þá sýni ég kurteisis hliðina mína og kommenta til baka, því ég kann mig. Og ef einhver vill gerast vinur minn þá samþykki ég það, sama hversu fjölfatlaður og leiðinlegur viðkomandi er. Enda get ég vel skilið það að fólki vilji gerast vinur minn því ég er svo gasalega skemmtilegur og kósý gæji.

Vinur minn sagði mér einu sinni sögu af manni sem ætlaði að panta sér konu frá Tælandi. En eitthvað ruglaðist þó pöntunin og hann fékk í staðinn lítinn mann frá Chile. Eftir því sem ég best veit lifa þeir hamingjusamir enn þann dag í dag. Endir.

ps. ég sé fram á fækkun á myspace vinum. búfokkinhú


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 11:20:47 / hakonice

quem di diligunt adolescens moritur

Oftar en ekki segji ég ljótt. T.d. ef einhver pirrar mig þá segi ég gjarnan; "ég vona að þú dettir í poll og drukknir" og bölva svo öllu í kringum mig í sand og ösku. Fariði fjandans til. Yfirleitt meina ég þó ekkert með þessu, heldur eru þetta bara orðin tóm og þessi orð mín falla í gleymskunnar dá og oftast sé ég ekki eftir því að hafa sagt svona fallegt. Engin eftirsjá.

En það hefur þó komið einu sinni fyrir að ég hafi bölvað fólki og farið í fanta vont skap og séð eftir því. Það skeði fyrir þremur árum og þessi orð sem ég tautaði ofan í sjálfan mig þann morgun stinga mig enn í dag. Því þó svo ég hafi ekki meint það sem ég sagði, þá fékk ég það duglega til baka. Eins og kalda blauta tusku.

Ég á fullt af vinum og ennþá fleiri kunningja. Suma tala ég oft við, nokkra stöku sinnum og aðra tala ég ekkert við. Hvort heldur sem það er minn vilji, annara vilji eða þögult samþykki. Sennilegast hef ég fordæmt allt þetta fólk á einhverjum punkti í lífinu, en það er bara vegna þess að ég á hvort eð er ekkert von á því að eitthvað komi fyrir. Enda meina ég ekkert með þessu í langflestum tilfellum, ég er bara svona reiður. En þegar það kemur eitthvað fyrir þá stingur það. Ég ætti kannski að passa hvað ég segi.

Ég elska ykkur öll (birt með fyrirvara um breytingar)

lagið; depeche mode - useless


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 02:33:36 / hakonice

nei nei, ég er bara ofurölvi

Undanfarna dagur hefur stórlega verið vegið að karlmennsku minni. Aðalega vegna þess að ég kann ekki að dæla bensíni á bíla. Ég veit að það er ekkert til að kunna, þetta er eins og stunda kynlíf og pissa samtímis. Maður stingur verkfærinu sínu inní, djöflast og hamast við inní svartholinu eins og lengi og maður hefur efni á (bensín er dýrt, líka kynlíf) sem er reyndar oftar en ekki tvær til þrjár mínutur en maður hefur því miður bara ekki efni á meiru (fátækur námsmaður). Sprautar svo gáfum og lífselxír inní þetta annars ágæta svarthol, tekur verkfærið hálft út (passa sig að fara ekki alveg út, viljum ekkert útfyrir) og hristir síðustu dropana útur verkfærinu innfyrir svartholið svo að maður sé nú alveg örugglega að fá sitt fyrir þennan mikla pening.

Auk þess tel ég mig vera sýna fram á miklar gáfur og snilli að láta aðra gera þetta hundleiðinlega skítverk fyrir mig. Ég vill ekkert standa úti í rigningunni í Reykjavík og dæla bensíni á bíla. Nei, ég vil vera inni að ríða og pissa. Jafnvel samtímis ef það er farið útí þá sálmana.

Þannig að þið skiljið.. ég kann alveg að dæla bensíni.. jafnvel og að gera dodo og pissa. Í svona tvær til þrjár mínutur auðvitað. Ég bara vill ekki dæla bensíni, ég vill ekki æfa rúmfræði og ég vill ekki pissa. Ég vill að aðrir geri þetta fyrir mig. Þetta eru allt saman subbuleg og ógeðsleg verk.

Ég vill vera Dance Commander og fara í búðina að sækja meiri... eld!

Geislaeðlisfræði er hlutur sem ég mæli pottþétt ekki með. omg lasers pew pew.

speki; eat kids (Angelina Jolie & Madonna)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  17  Alls: 119689