Hafiði spáð í því hvað orðið Blóð er magnað? Ef við tökum alltaf
einn og einn staf fyrir framan fáum við alltaf ný orð:
Blóð -> Svona rautt og ljótt,
aðalega vökvi nema frosið sé.
Lóð -> Svona til að lyfta
með.
Óð -> Svona að
vaða, eins og sögnin að vaða.
Ð -> Mér
er svona nokkurn vegin sama hvað þetta þýðir.. segjum bara
blóm.
En er þá ekki hægt að gera það sama með orðið Blóm, svona
í beinu framhaldi?
Blóm -> Svona gleði dæmi, ekki
ósvipað og sleikjó.
Lóm -> Svona læmingja
barn.
Óm -> Svona
mælieining fyrir hljóðstyrk
M ->
Svona kelling sem ræður yfir James Bond.
Nokkuð merkilegt ekki satt?
Orð dagsins; Svona