Obbosí.. þetta er sorglegt allt saman. Já.. svona meira og
minna. Allavega;
Hann Burri minn kvaddi mig í morgun með knúsi og kossi, hann er
að fara í heimahagana sína í Heklu og ætlar að vera þar þangað til
að það kemur einhver góð og gömul kona og kaupir hann (vona ég).
Svo fór Svenni bróðir frá mér núna í morgun í samfloti með honum
Burra mínum, en hann er samt ekki að fara í heimahagana, bara
Bretlands og BNA og sé ég hann ekki í tvær vikur. S.s. hann skyldi
mig einan eftir hérna í vinnunni en ég fæ samt Jóel svona endrum og
eins svo ég hafi einhvern til að pirra. Það er samt allt í lagi
svona þannig að vera hérna einn og yfir Jóel, veitir manni visst
vald.
'COZ KNOWLEDGE IS POWER! (Þessi var fyrir þig Binni)
Svo vann Liverpool í gær, hah! Bestir eða hvað? Hræddur um
það..
Já, svo er ég að verða veikur
og ég hef vissar grunsemdir um
hverjum það gæti verið að kenna.. hmmm 
Þannig að núna sit ég bara hérna einn í vinnunni og hlusta á
Sigur Rós og verð dapur.
Lag dagsins; Sigur Rós - Álafoss
Maður dagins; Hann Burri minn
Bíll dagsins og seinustu þriggja ára; Hann Burri
minn
Lið gærdagsins og komandi daga vonandi: Liverpool