Á miðvikudaginn er ég að fara í ferðalag, út fyrir endimörk
alheimsins eins og Bósi Ljósár orðaði það. Það verður gaman, ég og
hún ætlum að fara saman, bara tvö ein og ætlum að hlusta á
deftones alla leiðina. Tökum geimskipið hennar, það kemst
lengra og hún er betri flugmaður en ég, meira að segja verðlaunaður
geimflugmaður. Það er gott, meira öryggi í því fyrir svona króníska
geimflughrædda menn eins og mig. Auk þess ætlaði ég að taka með mér
nesti, nokkra bjóra eða svo. Þannig að ég má hvort eð er ekki stýra
geimskipinu. Það er bara svo gott að drekka.. ég fékk verðlaun
fyrir það.
En gleðifréttir! Nöglin fer að fara.. hún er þarna að vaxa hægt
og rólega og ég get hreyft við henni dúlega, jafnvel spilað fallegt
lag. Það er pínu vont samt en ekkert rosalega. Ég gæti svosem bara
kippt henni af.. en ég ætla ekki að gera það, leyfa henni að njóta
þess að liggja þarna dáin þangað til að hún dettur.. Þannig að fólk
fer að hætta að segja við mig "oj hvað þú ert ógeðslegur" þegar ég
veifa til þeirra.. a.m.k. flestir hætta því.
Svo fékk ég nærri því flog í morgun, ætlaði að vakna eitur
snemma (9:30) til að fara í skólann. Ég hóf daginn bara
svona reglubundið, bölvaði yfir mánudeginum og öðrum hlutum.
skreið svo á gólfið og fann mér buxur.. en þegar mér varð litið í
sokkaskúffuna varð ég fyrir áfall.. engir sokkar! Neyddist til að
fara berfættur í skólann, samt ekki segja neinum, það er svo
neyðarlegt eitthvað og kalt. En húsmóðirin ég reddaði þessu í dag,
skellti í eina þvottavel. Újé.
En árshátið 18-19 nóv hjá Steinull, og ég má vera memm.. fæ
m.a.s. að gista á hóteli frítt því að hún er haldin í öðru
bæjarfélagi.. einhvers staðar í Ármúlanum held ég.
En hey, leikum leik.. segið mér hvaða lag ég minni ykkur á.. og
ég skal svo segja ykkur hvað lag minnir mig á ykkur, spennandi?
Engan veginn.. en samt.. leikum okkur smá.
Á skalnum 1-10.. hversu mikið naustu þess að lesa þetta?
Lagið; Poison the Well - Slice Paper Wrists