Ooooog hér er ég mættur! Örvæntingafullur, úrillur og illa
sofinn! Allt gott saman í einum potti. Sveiattan. Sef í svona 3-4
tíma og vakna.. er svo vakandi fram í rauðan dauðann og næ svo smá
lúr rétt fyrir vinnu. Svona hefur þetta gengið síðustu þrjá daga.
Ég kalla á hjááááálp. Bangsi til að svæfa mig væri vel feginn takk
já.
Hinsvegar er það tvennt sem ég velti fyrir mér mikið núna..
hvort ég eigi að fara suður á laugardaginn í afmæli og hrynja í
það. Sem er mjög óhollt, eða hanga heima á krók og vinna, vinna,
vinna og vinna. hmmm.. what to do to... Kannski að ég slái þessu
bara upp í kæruleysi og flýji sómalífið í Skagafirðinum og berji
hest og skeri bönd.
Svo er það næsta sumar, ætti maður að skella sér á kelduna? Það
er hinsvegar mjög hollt en stórhættulegt. Flugvélar, arabar og
bíbí. En á keldunni eru líka Sigur Rós, Placebo og sjálfsagt
eitthvað fleira dásamlegt. Ég er ákaflega á báðum áttum.
Hey já sjit! Djöfull var fokkin magnað í búninga partý hans
Nonna. Ég og Kalli bara vúúúúú í einhverjum brjáluðum loðnum
búningum. Uppskárum mjög mikið af knúsum. Annars var þetta
alveg brill, allir í einhverri múnderingu og flottheit. Pottþétt
árlegur viðburður. Fólk má samt alveg koma með myndir úr
partýinu..
Ef að Kalli er DJ Drunk þá er ég DJ Hausverkur..
Manbag for the win!
Sá sem fær þann vafasama heiður að vera nr 19.000 hingað á
síðuna fær knúúús.
Ætla að kyssa vegginn minn...
Lagið; Beecher - And on that day he became a human
plumbline