...and you will know us by the trail of dead!
26.05.2006 13:15:00 / hakonice

keke

Í dag verð ég obbó klár og stór...

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 13:47:52 / hakonice

pain.. gone.. rain.. stop.. sun.. shine.. you're.. mine.

Það er eitt sem sárlega vantar í allar þessar kosningar og loforð flokkana. Það talar enginn um fokkin veðrið! Ef að ég væri í framboði væri ég búinn að lofa góðu veðri, ég væri nokkuð vís með sigurinn tel ég. En svo er það auðvitað annað mál hvort það gangi eftir þetta loforð mitt með veðrið. Enda skiptir það kannski ekki höfuð máli. Aðalmálið er auðvitað að lofa öllu fögru, fela sannleikann og kaupa atkvæði með bjór og fölsku brosi. Ekki flókið.

Og allir flokkarnir bjóða nokkurn vegin það sama. Ný sundlaug, minnka skuldir, efla ferðamanna iðnaðinn og að ógleymdu bla bla bla. Allt saman eins.. nema kannski hjá vinstri grænum, en þeir vilja ekki fá álver hingað né virkja. Hinir flokkarnir vilja hins vegar ekkert kannast við hugtökin "álver" og "virkjun". Því segi ég; lofum betra veðrið. Það er skothelt og getur ekki klikkað.

Kosningar eru whack og þetta löngu útbrunna flokkakerfi líka. Leggjum það niður. Brennum það.

Sá Burra Minn um helgina.. stoppaður á rauðum ljósum hjá Smáralind (sem ég veit btw hvar er). Leit mjög vel út.. fyrir utan feita kallinn sem prumpar og pissar í hann og reykir sígarrettur. Svei, ég vill fá Burra Minn aftur! Enn eitt kosninga loforið mitt. Sko? Kominn með tvö loforð. Setjið bara x við mig á kjördag.. svo dettum við í það og vingumst við Kanada. Skal jafnvel henda inn fölsku brosi til ykkar í leiðinni.

Ekki fara að sjá Cry Wolf.

Lagið; From Autumn to Ashes - short stories with tragic endings..


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 16:20:21 / hakonice

stan the man brings out the fan in a big van.. but its a scam - Rím

Vegna fjölda yfirvofandi árása og áskoranna um það að ég eigi að blogga hef ég ákveðið að rita hérna nokkur ör orð. Þó ekki mörg, en ekki fá. Og alls ekki leiðinleg, ónei. En ef þér finnst þau leiðinleg þá hefuru fullt leyfi og vald til að drekkja þér í næsta skurði, mercí búkú.

Eurovison næstu helgi. Ég hata það. Áfram Herra Lordi! Ef þeir vinna ekki þessa popppussu keppni þá er eitthvað að þessum heimi. Klárlega besta lag sem hefur tekið þátt í þessari annars mjög daufu keppni (fyrir utan Eurovísu auðvitað). Lordi fá sko mitt atkvæði. Silvía má svo sem líka alveg vinna mín vegna.

Þarnæstuhelgi. Boj ó boj, útskrift og tilgangslausar kosningar. Kallar auðvitað bara á eitt; böns af fylleríi. Magnað að útskrifast.. finnst ég vera obbó klár og stór strákur núna. Jafnvel klárari og stærri. haha... Vel gert Hákon minn, loksins búinn eftir 6 ár heyri ég einhvers staðar um leið og ég fæ svona samúðar og aumingjaklapp á bakið.

Sumar á næsta leiti.. sól i heiði og allt það. Skemmtileg með eindæmum. Og nafnlausi bílinn minn á leið á sölu á föstudaginn þannig að ég fæ að labba um allt í góða slæma sumar verðinu. Mig eða mér hlakkar til. 

Stefnir allt að maður endi í Rvk í haust... alt alt alt ctrl ctrl ctrl del del del...

Mólkó...

Lagið; Heaven Shall Burn - Behind a Wall of Silence


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 23:58:08 / hakonice

farðuheimtilþín

Föstudagur..

Það er föstudagur og skv. gildandi alþingislögum ætti ég að vera fullur núna. Sérstaklega þar sem það er sæluvika og allsherjar sukk yfir henni. En, nei... ég hef ákveðið að gerast lögbrjótur og sleppa því að vera fullur. Enda er ég nýkominn úr vinnunni og er að fara að vinna aftur kl 7 eða 10 í fyrramálið.. allt óvíst eins og allt annað. Og ég er líka einn heima og það ætti þannig að vera kick ass partý.. en ég er lögbrjótur.

be quiet and drive er að gera sig í alla staði þessa dagana.. einnig Tonight, tonight. lyricslyricslesalesaskiljaskilja

Harðfiskur er góður.

Ég dimmiteraði hinsvegar um daginn.. djöfull var það sick shit fick gaman. Tókum okkur til og stofnuðum gengi. Emo gengi. Allir svarthærðir, málaðir, með svart naglalakk og bara í rauðum og svörtum fötum. Bara fokkin kúl.. á fullt af myndum af þessu ef áhugasamir vilja sjá gengið í gangi. Ég leit reyndar alveg út eins og Brian Molko.. hann er ekkert emo :( Hann er bara Brian Molko.. Molko hljómar samt eins og eitthvað mjólkurkakókex.. girnilegt. Mólkó..Mólkó..Mólkó..Mólkó..

Í emo genginu eru harðir menn.. ég, Kalli, Binni og Þráinn. Og svo ég setji nú inn fallegt "kvót" frá Nicky Sixx; Just because we were makeups dosent mean we cant kick your ass. Og fyrir þá sem ekki vita þá er Nicky Sixx gítarleikari Mötley Crue.. google it og sjáið þá málaða.

Mólkó..

Lagið; Emo Gengið - Tælenski Strákur


» 9 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 101661