...and you will know us by the trail of dead!
25.06.2006 02:35:52 / hakonice

eggjun er geggjun - rím

Núna sit ég hérna í hægðum mínum (haha) og set mjúsík á mp3 spilarann minn fyrir ferðina góðu.

Lifið heil.

Lagið; Sigur Rós - Dánarfregnir og Jarðafarir


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 21:52:55 / hakonice

so... run!

Ég er eiginlega kominn með fokkin leið á þessu blogg sjitti. Amk svona yfir sumarið, maður hefur nóg annað að gera heldur en að hanga í tölvu til að rita einhver ómerkileg ókvæðis orð og drullu. Vinna, leika við hoho, fótbolti, körfubolti, drekka sig ógeðslegan, æla, fara á Hróarskeldu og misnota fólk.... samt ekki endilega í þessari röð. Þokkalega skothelt plan og bloggið er ekki að falla í þennan ótrúlega spennandi flokk áhugamála minna þessa stundina.

Þannig að ég er að hugsa um að segja þetta gott í einhvern tíma, endilega kíkið samt annað slagið hingað og athugið hvort ég hafi hent einhverjum línum hingað, aldrei að vita nema það eigi eftir að ske.

Sá sem fattar úr hvaða lagi titilinn er fær bros í verðlaun.. nema Kalli, hann má ekki taka þátt.

Fékk í háskólann.. Reykjavík í haust..

Lagið; Beecher - I wont miss, or be missed!

Kveðja.


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 16:12:08 / hakonice

hahahahha nei

Ég er nokkuð viss um að Jussi Tarvaien, vinur okkar Binna frá Hróarskeldu 2004, sé í raun einn af Lordi genginu.. það er svo augljóst.. hann er skáti, vantar á hann einn putta, þokkalega weird, nörd, hæglátur og síðast en ekki síst þá er hann líka frá Finnlandi! Þetta bara hlýtur að vera rétt hjá mér.

Honum verður samt aldrei boðið í Emo gengið.

Lagið; Beecher - I wont miss, or be missed!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 101677